A A A
16.06.2010 - 16:32

Ţjóđhátíđardagurinn

Vegna þjóðhátíðardagsins 17. júní verður lokað í Stúdíó Dan.
31.05.2010 - 14:49

Sumartilbođ

Tilboð á kortum
Mánaðarkort í líkamsrækt 6000kr. gildir til 31.07.2010
3 Mánaðar kort í líkamsrækt 12.000kr gildir 30.06.2010

Ekki taka þér frí á sumrinn 
31.05.2010 - 14:11

Sumaropnun

Nú er að kominn sá tími að við neyðumst til að stytta opnunartíma Stúdíó Dan og frá og með 5. júní verður opið alla virka daga frá kl 05:45 til 20:00. Laugardaga verður opið frá kl 10:00 til 15:00. En síðan verður lokað á sunnudögum.
02.04.2010 - 14:25

Gleđilega páska

Viljum bara minna á að það er opið í Studio Dan til kl 4 í dag (föstudaginn langa) á laugardaginn, sunnudaginn og mánudaginn. 

Gangið hægt í gegnum gleðinar dyr og gleðilega páska!!!!

Kv. Starfsfólk Studio Dan 
30.03.2010 - 08:29

Kílóin fuku!!

Þeir Lalli, Siggi Natan og Hlynur fóru í  keppni um það hver þeirra gæti misst flest kíló á einum mánuði. Mörg ykkar hafa séð þá sveitta og eldrauða í Stúdíóinu undanfarnar vikur enda árangurinn gríðarlegur og samtals misstu þeir yfir 30kg sem er kannski í það mesta en þetta eru gríðarlegir keppnismenn. Í dag var svo sigurvegarinn krýndur og var það enginn annar en Lalli en hann missti 13kg!!!!

Við erum alls ekki að mæla með því að missa svona mörg kíló á svo stuttum tíma en þessir drengir hafa greinilega lagt allt í sölurnar.

Við hjá Studio Dan stóðumst ekki mátið og gáfum sigurvegaranum eða „the biggest loser“ páksaegg (sykurlaust að sjálfsögðu) Myndirnar sem teknar voru þegar verðlaunaafhendingin fór fram má sjá í myndagallerý hér hægramegin á síðunni


Við viljum enn og aftur árrétta að ekki er ráðlagt að missa svona mörg kíló á svo stuttum tíma.  Ef þú ert að á leiðinni að létta þig þá mælum við með að fá ráðleggingar hjá fagfólki áður en þú byrjar!!!

Fyrri síđa
1
234567Nćsta síđa
Síđa 1 af 7
Tímaplan Studio Dan
Boozt bar!
Vefumsjón