A A A
30.03.2010 - 08:29

Kílóin fuku!!

Þeir Lalli, Siggi Natan og Hlynur fóru í  keppni um það hver þeirra gæti misst flest kíló á einum mánuði. Mörg ykkar hafa séð þá sveitta og eldrauða í Stúdíóinu undanfarnar vikur enda árangurinn gríðarlegur og samtals misstu þeir yfir 30kg sem er kannski í það mesta en þetta eru gríðarlegir keppnismenn. Í dag var svo sigurvegarinn krýndur og var það enginn annar en Lalli en hann missti 13kg!!!!

Við erum alls ekki að mæla með því að missa svona mörg kíló á svo stuttum tíma en þessir drengir hafa greinilega lagt allt í sölurnar.

Við hjá Studio Dan stóðumst ekki mátið og gáfum sigurvegaranum eða „the biggest loser“ páksaegg (sykurlaust að sjálfsögðu) Myndirnar sem teknar voru þegar verðlaunaafhendingin fór fram má sjá í myndagallerý hér hægramegin á síðunni


Við viljum enn og aftur árrétta að ekki er ráðlagt að missa svona mörg kíló á svo stuttum tíma.  Ef þú ert að á leiðinni að létta þig þá mælum við með að fá ráðleggingar hjá fagfólki áður en þú byrjar!!!

Tímaplan Studio Dan
Boozt bar!
Vefumsjón